Fatlaðir eru fólk eins og við!

Ég get nú ekki annað en skrifað nokkrar línur varðandi starf mitt sem aðstoðarmaður á sambýli fyrir geðfatlaða. Við erum 10 menn að vinna á okkar vinnustað og höfum verið í launabaráttu í nokkur ár og á sama tíma hefur störfum verið fækkað hjá okkur og að sjálfsögðu hefur í leiðinni þjónustan verið skert við skjólstæðinga okkar! Bæjaryfirvöldum virðist vera nákvæmlega sama um geðfatlaða og þann árangur sem þó hefur náðst á undanförnum árum! Nei lækkum við þá launin og skerðum þjónustuna því þetta eru jú bara geðfatlaðir! Skera niður yfirvinnu hjá starfsmönnum sambýlisins en látum bæjarstjórann hafa yfirvinnu! Auðvitað er það allt í lagi það er jú hefð að bæjarastjórinn fái óunna yfirvinnu borgaða!!!

Akureyri í öndvegi, staður fjölskyldufólks!! (já ef það vill vinna fyrir skammarleg laun og verða fljótt gjaldþrota)

Kveðja

Steini


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auðun Gíslason

X-D! Og afleiðingin er þessi!

Auðun Gíslason, 21.4.2007 kl. 02:18

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Þorsteinn.

Þakka þér fyrir þennan pistil, sem því miður er að hluta til sama saga og við eigum við að etja hér sunnan heiða varðandi hið opinbera og þjónustu hvers konar.

Það virðist helst ætlast til þess að starfsmenn líti bara á starf sitt sem einskonar sjálfboðavinnu við samfélagsþjónustu og mínar kynsystur að ég tel of margar í því hlutverki að segja já og amen við slíku hlutskipti allt of lengi.

Aftur þakka þér fyrir að vekja athygli á þessu.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 21.4.2007 kl. 02:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband